Hoppa yfir valmynd

Frétt

12. júní 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Smitaðist hér á landi

Einstaklingur á miðjum er smitaður af inflúensunni A(H1N1) og hefur líklega smitast af hjónum sem hingað komu frá Bandaríkjunum. Í tilkynningu frá sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir: “Fjórða tilfelli inflúensu A(H1N1) hefur greinst á Íslandi. Þar á í hlut kona á miðjum aldri og allt bendir til þess að hún hafi smitast af hjónum sem komu hingað frá Bandaríkjunum 3. júní síðastliðinn og greindust bæði með veikina. Þetta síðasta tilfelli má því rekja til smits hér innanlands en þeir þrír, sem áður höfðu greinst með inflúensuna hérlendis, smituðust allir í Bandaríkjunum og veiktust eftir komuna til Íslands.

Fulltrúar sóttvarnalæknis, almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, heilbrigðisráðuneytis og dómsmálaráðuneytis ræddu stöðu mála á fundi í morgun. Í ljósi þess að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin - WHO hefur lýst yfir heimsfaraldri, og þar með fært sig upp á neyðarstig, gildir það sama hérlendis, eðli máls samkvæmt. Þrátt fyrir það var ákveðið að vinna áfram samkvæmt hættustigi viðbragðsáætlunar hérlendis í ljósi þess að veikin er yfirleitt væg, bæði erlendis og hérlendis. Er þetta einnig í samræmi við skilning WHO.

  • Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins greinir frá því í dag að alls séu 27.689 tilfelli inflúensu A (H1N1) staðfest í heiminum, þar af 1.565 í ríkjum ESB og EFTA.
  • Inflúensa A (H1N1) hefur dregið 144 manns til dauða, þar af 108 í Mexíkó, 27 í Bandaríkjunum og 4 í Kanada."

Tilkynningar um viðbúnað vegna inflúensu A (H1N1) eru birtar á influensa.is, bæði á íslensku og ensku, og á almannavarnir.is. Þar er einnig að finna ýmsar upplýsingar um inflúensuna og ráðstafanir í því sambandi á landlaeknir.is, og á heimasíðum Sóttvarnarstofnunar Evrópusambandsins - ECDC, http://www.ecdc.europa.eu/ og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar - WHO, http://www.who.int/en/.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum