Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. júní 2009 Utanríkisráðuneytið

Baráttan gegn alnæmi á heimsvísu: smitaðir fái viðhlítandi meðferð

Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneyti, flutti þann 16. júní ávarp á fundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna sem helgaður var baráttunni gegn alnæmi á grundvelli þúsaldarmarkmiðanna og sérstakri alnæmisyfirlýsingu samtakanna. Í ávarpinu var lögð áhersla á mikilvægi þess að koma í veg fyrir að einstaklingar smituðust og að þeir sem væru smitaðir fengu viðhlítandi meðferð. Einnig tók ráðuneytisstjóri þátt í sérstöku málþingi Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um alþjóðlega heilsuvernd á krepputímum og lagði þar sérstaka áherslu á menntun ljósmæðra, samstarf háskóla og skipulag lyfjamála í þróunarríkjunum.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum