Hoppa yfir valmynd

Frétt

29. júní 2009 Dómsmálaráðuneytið

Tímabundin setning í embætti forstjóra Útlendingastofnunar

Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra hefur sett Rósu Dögg Flosadóttur lögfræðing í embætti forstjóra Útlendingastofnunar tímabundið í sex mánuði, frá og með 1. júlí -31. desember 2009.
Rósa Dögg Flosadóttir
Rósa Dögg Flosadóttir

Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra hefur sett Rósu Dögg Flosadóttur lögfræðing í embætti forstjóra Útlendingastofnunar tímabundið í sex mánuði, frá og með 1. júlí -31. desember 2009. Embættið var laust til setningar vegna framlengds leyfis skipaðs forstjóra til næstu áramóta.

Fjórar umsóknir bárust um embættið en ein var dregin til baka. Aðrir umsækjendur voru Hreiðar Eiríksson lögfræðingur og Jóhann Baldursson lögfræðingur.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum