Hoppa yfir valmynd

Frétt

30. júní 2009 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs

Norrænt samstarf
www.norden.org

Alls bárust 63 tilnefningar til Náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs í ár, þar af átta frá Íslandi. Í ár verða verðlaunin veitt norrænu fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem á einstakan hátt hefur stuðlað að góðu fordæmi við að fá fólk til að stunda útivist og sem hefur aukið skilning á þýðingu náttúrunnar. Verðlaunin, sem eru 350.000 danskar krónur, verða nú veitt í fimmtánda sinn.

Eftirtaldar tilnefningar bárust frá Íslandi:

Ferðafélag Íslands.
Landvernd.
Landvarðafélagið.
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs.
Ari Trausti Guðmundsson.
Ásta Arnardóttir.
Ósk Vilhjálmsdóttir.
Magnús Magnússon.

Dómnefnd ákveður hver hlýtur verðlaunin og tilkynnir það á fundi sem haldinn verður á Íslandi í byrjun október. Verðlaunin verða síðan afhent á Norðurlandaráðsþinginu í Stokkhólmi í lok október. Kolbrún Halldórsdóttir er nýskipaður formaður dómnefndarinnar og Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, formaður SUNN, situr einnig í dómnefndinni.

Náttúru- og umhverfisverðlaunin eru ein af fjórum verðlaunum Norðurlandaráðs, önnur verðlaun eru veitt fyrir bókmenntir, kvikmyndir og tónlist. Íslenska fyrirtækið Marorka hlaut umhverfisverðlaunin í fyrra.

Frétt á norden.org.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum