Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. júlí 2009 Utanríkisráðuneytið

Litháíska þingið styður aðildarumsókn Íslands

Lithuania's Foreign Minister Vygaudas Usackas and Iceland's Foreign Minister Össur Skarphéðinsson
Picture_018b

Litháíska þingið samþykkti í dag samhljóða yfirlýsingu þar sem lýst er yfir fullum stuðningi við aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu og önnur aðildarríki ESB hvött til að gera slíkt hið sama. Í ályktun þingsins er þess sérstaklega minnst að Ísland skyldi hafa verið fyrst ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Litháen. Hvetur þingið til þess að undirbúningur aðildarviðræðna hefjist fljótt og að aðildarviðræður hefjist í byrjun árs 2010. Þá lýsa Litháar fullum vilja til að deila reynslu sinni af aðildarviðræðum við ESB með Íslendingum.

Utanríkisráðherra Litháen, Vygaudas Usackas, er væntanlegur til Íslands á laugardag. Hann mun eiga fundi með Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra og Árna Þór Sigurðssyni, formanni utanríkismálanefndar.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum