Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. september 2009 Utanríkisráðuneytið

Einar Gunnarsson nýr ráðuneytisstjóri

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur skipað Einar Gunnarsson ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu frá 1. október nk. Benedikt Jónsson, sem verið hefur ráðuneytisstjóri, verður sendiherra í London frá sama tíma.

Einar hefur undanfarin ár gegnt ábyrgðarstöðum í utanríkisþjónustunni, á aðalskrifstofu og sendiskrifstofunum í Brussel og Genf. Var Einar m.a starfsmannastjóri og síðast skrifstofustjóri yfir viðskiptasamningum. Benedikt á að baki víðtæka reynslu í utanríkisþjónustunni en áður en hann tók við embætti ráðuneytisstjóra var hann m.a. sendiherra Íslands í Moskvu og fastafulltrúi og sendiherra hjá alþjóðastofnunum í Genf.

Æviágrip Einars Gunnarssonar (PDF) og Benedikts Jónssonar (PDF).


Bendikt Jónsson og Einar Gunnarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum