Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. október 2009 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 3/2009

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

  1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 18.700
  2. Gisting í einn sólarhring kr. 10.400
  3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag, kr. 8.300
  4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag, kr. 4.150

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. nóvember 2009. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2009 dags. 22. maí 2009.

Nefndin fer þess á leit við viðkomandi ráðuneyti að þau kynni efni þessarar auglýsingar þeim stofnunum og fyrirtækjum sem undir þau heyra.

Ennfremur er vakin athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: /ferdakostn.html.

Reykjavík, 29. október 2009.
Ferðakostnaðarnefnd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum