Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. október 2009 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Leiðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda

Umhverfisráðuneytið og Samtök atvinnulífsins boða til kynningar- og umræðufundar um leiðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Fundurinn fer fram á Grand Hótel þriðjudaginn 20. október kl. 13:00-15:00. Aðgangur er ókeypis en óskað er eftir að þátttakendur skrái sig með tölvupósti á [email protected] fyrir hádegi 19. október.

Dagskrá fundarins:

  • Opnun: Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.
  • Brynhildur Davíðsdóttir: Möguleikar til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda - yfirlit.
  • Bryndís Skúladóttir: Aðgerðir í iðnaði og meðferð úrgangs.
  • Guðbergur Rúnarsson: Aðgerðir í sjávarútvegi.
  • Umræður.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum