Hoppa yfir valmynd

Frétt

6. nóvember 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Almenn bólusetning við inflúensu hefst 23. nóvember

Sóttvarnalæknir og ríkislögreglustjóraembættið hvetja til þess að menn í áhættuhópum panti sér strax tíma í bólusetningu á heilsugæslustöð sinni. Í tilkynningu sem sóttvarnalæknir og ríkislögreglustjóri sendu frá sér í dag segir að nú geti allir landsmenn pantað tíma á heilsugæslustöðvum í bólusetningu gegn inflúensu A(H1N1) frá og með mánudegi 16. nóvember. Viku síðar, eða mánudaginn 23. nóvember, verður byrjað að bólusetja þá sem fyrstir skráðu sig.

Vonir stóðu til þess að unnt yrði að hefja almenna bólusetningu fyrr. Hins vegar kom fram í morgun, á símafundi sóttvarnalæknis með sóttvarnalæknum, lögreglustjórum og fulltrúum heilbrigðisstofnana og almannavarnadeilda um allt land, að borist hefðu óvæntar fregnir um að minna bærist af bóluefni í næstu sendingu sem bærist einhverjum dögum síðar til landsins en gert hafði verið ráð fyrir. Í tilkynningunni segir ennfremur: „Alls hafa verið bólusettir um 30.000 manns hérlendis og áfram verður haldið af fullum krafti að bólusetja sjúklinga í skilgreindum forgangshópum með því bóluefni sem til er og með bóluefni sem væntanlegt er næstu tvær vikurnar. Starfsmenn heilbrigðisþjónustunnar hafa vissar áhyggjur af því að sjúklingar í skilgreindum forgangshópum og vanfærar konur skili sér ekki eins vel til bólusetningar og æskilegt væri, sjálfra þeirra vegna og samfélagsins.

  • Sóttvarnalæknir hvetur því vanfærar konur og þá sem eru með „undirliggjandi sjúkdóma“ til að panta þegar í stað tíma fyrir bólusetningu á næstu heilsugæslustöð.
  • Þá er eindregið mælst til þess að aðstandendur barna, ungmenna og aldraðra með „undirliggjandi sjúkdóma“ sjái til þess að viðkomandi láti bólusetja sig.

Fram kom í máli Haraldar Briem sóttvarnalæknis á símafundinum í morgun að ætla mætti að um 50.000 Íslendingar hefðu veikst nú þegar í inflúensufaraldrinum. Inflúensan sé ekki lengur í sókn, þegar litið er á landið í heild, sem ekki síst sé að þakka því hve margir hafi verið bólusettir úr þeim hópum sem veikir eru fyrir. Mótstaðan gegn útbreiðslu inflúensunnar í samfélaginu fer vaxandi þegar fjöldi bólusettra bætist við þann hóp sem þegar hefur fengið sjúkdóminn. Einnig má ætla að notkun inflúensulyfja hafi stuðlað að því að draga úr útbreiðslu inflúensunnar og alvarlegum afleiðingum hennar.

Afleiðingar inflúensufaraldsins geta verið mjög alvarlegar eins og dæmin sanna hérlendis og erlendis. Bólusetning er því sjálfsagður hlutur, enda fullvíst og margsannað að bóluefnið veitir góða vörn gagnvart veikinni. Ekki er vitað um nein tilfelli alvarlegra aukaverkana bólusetningar, hvorki hérlendis né erlendis.“



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum