Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. nóvember 2009 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Breytendur afhentu umhverfisráðherra undirskriftalista

Breytendur afhenda umhverfisráðherra undirskriftalista
Breytendur

Fulltrúar Breytenda, ungliðahreyfingar Hjálparstarfs kirkjunnar, afhentu Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra, undirskriftir sem hreyfingin safnaði undir yfirskriftinni hlýnun jarðar er mannréttindamál.

Með undirskriftunum krefjast Breytendur þess að stjórnvöld skilgreini stöðu flóttamanna undan hlýnun jarðar og viðbrögð Íslands við þeim sem kunna að leita sér hælis hér vegna hennar. Þeir krefjast þess einnig að Íslendingar taki sér stöðu meðal leiðandi þjóða í loftslagsmálum í Kaupmannahöfn í desember 2009.

Undirskriftasöfnunin er hluti af herferð sem Breytendur stóðu fyrir síðastliðið sumar og haust og var ætlað að vekja athygli á stöðu fólks sem eru flóttamenn vegna loftslagsbreytinga. Samkvæmt tölum frá Rauða krossinum eru nú fleiri sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna hlýnun jarðar en stríðsátaka. Hlýnun jarðar leiðir meðal annars til uppskerubrests, útbreiðslu eyðimarka, hækkunar sjávarmáls, bráðnunar jökla og öfga í veðurfari. Samkvæmt Háskóla Sameinuðu þjóðanna eru flóttamenn vegna hlýnunar jarðar um 24 milljónir í dag en áætlað er að þeir verði um 50 milljónir í lok árs 2010. Breytendur hafa vakið athygli á þessu vandamáli einkum vegna þess að þetta fólk hefur engin skilgreind réttindi í alþjóðasamfélaginu.

Grein um herferðina á heimasíðu Changemakers.

Frétt Rúv um undirskriftastöfnun Breytenda.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum