Hoppa yfir valmynd

Frétt

12. nóvember 2009 Utanríkisráðuneytið

Afhending trúnaðarbréfs á Indlandi

Guðmundur Eiríksson sendiherra afhenti hinn 11. nóvember 2009, forseta Indlands, frú Pratibha Devisingh Patil, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands á Indlandi með aðsetur í Nýju Delhí. Athöfnin fór fram í Rashtrapati Bhavan, forsetahöllinni í Delhí.

Að athöfninni lokinni ræddu forsetinn og sendiherra um mikilvægi þess að hagsmunir Indlands og Íslands fylgdust að og skiluðu mestum árangri, einnig um tvíhliða samskipti ríkjanna og gerði sendiherrann m.a. grein fyrir áhuga íslenskra fyrirtækja á þátttöku í virkjun vatnsafls og jarðhita á Indlandi.  Þá var rætt um að koma á auknum tengslum Indlands og Íslands á sviði menntunar, vísinda og tækni.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum