Hoppa yfir valmynd

Frétt

19. nóvember 2009 Forsætisráðuneytið

Staða íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu

Kjörtímabil íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu rennur út þann 31. október 2010. Evrópuráðið hefur því farið þess á leit við dómsmála- og mannréttindaráðuneytið að tilnefnd verði af Íslands hálfu þrjú dómaraefni.
Mannrettindadomstóllinn í Strassborg.
Mannréttindadómstóll Evrópu.

Kjörtímabil íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu rennur út þann 31. október 2010. Evrópuráðið hefur því farið þess á leit við dómsmála- og mannréttindaráðuneytið að tilnefnd verði af Íslands hálfu þrjú dómaraefni en samkvæmt 22. gr. mannréttindasáttmálans sbr. lög nr. 62/1994 eru dómarar við Mannréttindadómstólinn kjörnir af þingi Evrópuráðsins, af lista með þremur mönnum sem samningsaðili tilnefnir.

Um hæfisskilyrði dómara við mannréttindadómstólinn er fjallað í 21. gr. mannréttindasáttmálans og kemur þar fram að dómarar skuli vera menn grandvarir og verði þeir annaðhvort að fullnægja kröfum um hæfi til að gegna æðri dómarastörfum eða vera lögvísir svo orð fari af. Þeir skuli skipa sæti sitt sem einstaklingar og meðan kjörtímabil þeirra varir skuli þeir ekki taka þátt í neinni starfsemi sem sé ósamrýmanleg sjálfstæði þeirra, hlutleysi eða kröfum sem gerðar eru til fulls dómarastarfs. Þá gerir dómstóllinn þá kröfu að dómari hafi gott vald bæði skriflega og munnlega á öðru tveggja opinberra tungumála réttarins, þ.e. ensku eða frönsku, og nokkurn skilning á hinu. Dómstóllinn leggur áherslu á að á listanum séu dómaraefni af báðum kynjum.

Mannréttindadómstóll Evrópu í Strassborg fjallar um mál sem til hans er vísað af einstaklingum og samningsaðilum vegna meintra brota á ákvæðum mannréttindasáttmála Evrópu eða samningsviðaukum við hann. Dómstóllinn er skipaður einum dómara frá hverju samningsríkja og er hver dómari skipaður til sex ára í senn. Sérstök athygli er vakin á því að taki viðauki nr. 14 við Mannréttindasáttmálann gildi áður en kosning dómara fer fram í apríl 2010 mun kjörtímabil þess dómara er nú situr framlengjast um þrjú ár eða til 2013.

Hér með gefst þeim sem áhuga hafa á að vera tilnefndir af Íslands hálfu sem dómaraefni við mannréttindadómstólinn kostur á að senda dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu umsókn sína fyrir 3. desember 2009. Er þess óskað að umsóknir berist á sérstökum umsóknareyðublöðum sem nálgast má hér.

Upplýsingar um starfskjör og stöðu dómara við Mannréttindadómstólinn má finna hér.

Frekari upplýsingar veitir Bryndís Helgadóttir, settur skrifstofustjóri, í síma 545 9000, netfang: [email protected].

Sjá einnig meðfylgjandi pdf-skjöl frá Mannréttindadómstólnum. Vefsíða dómstólsins er hér.

Appendix_3_Res1646(2009)-AP_e (pdf-skjal)

Appendix_4_Rules_of_procedure_PA_extract_pp_164-167_e (pdf-skjal)



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum