Hoppa yfir valmynd

Frétt

27. nóvember 2009 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Kortlagningu landgerða á Íslandi lokið

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og starfsfólk Landmælinga kynntu í gær niðurstöður CORINE-verkefnisins. Meðal þess sem fram kemur í niðurstöðunum er að byggingarsvæði stækkuðu um 1055% árin 2000 til 2006 og jöklar minnkuðu um 1,63%. Niðurstöðurnar eru birtar í heild sinni í skýrslu sem gefin hefur verið út og á vefsjá Landmælinga sem opnuð var í gær.

Í CORINE-verkefninu er landið flokkað í fimm grunnflokka sem skiptast í 44 mismunandi landgerðir. Ísland einkennist umfram allt af náttúrulegum landgerðum en um 88% landsins falla í þá flokka og eru stærstu landgerðirnar mólendi, mosi og kjarr (35%), ógróin hraun og urðir (23%), hálfgróið land (13%), jöklar (10,5%) og mýrar (6,3%). Í verkefninu var Ísland flokkað fyrir árið 2000 annars vegar fyrir árið 2006 en alls skipti um 0,62% af yfirborði Íslands um landgerð á þessu tímabili. Langmest breyting varð á byggingarsvæðum, eða 22,57 km2 sem er aukning um 1055%. Þá stækkuðu iðnaðar- og verslunarsvæði um 20% sem skýrist aðallega af virkjunarframkvæmdum og aukning sumarbústaðasvæða stækkuðu þann flokk um 15%. Einnig kemur fram að jöklar landsins minnkuðu um rúmlega 180 km2 (eða 1,63%) milli áranna 2000 og 2006.

Gögnin verða nýtt til þess að fylgjast með breytingum á landnotkun auk þess sem þau nýtast sem grundvöllur að umhverfisstjórnun og í margvíslegri vinnslu í landupplýsingakerfum.

Verkefnið sem nefnist CORINE (Coordination of Land Information on the Environment) var unnið í samvinnu við sveitarfélög landsins og fjölda íslenskra stofnana. Sérfræðingar Umhverfisstofnunar Evrópu sáu um ráðgjöf og gæðaeftirlit.

Sjá nánar á vef Landmælinga Íslands.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum