Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. desember 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Bóluefni dreift á heilsugæslustöðvar eftir helgi

Ný sending bóluefnis gegn inflúensunni A(H1N1) berst heilsugæslustöðvum um land allt á mánudag og þriðjudag, 14. og 15. desember. Þetta kemur fram í tilkynningu sem sóttvarnalæknir og almannavarnadeild RLS hafa sent frá sér. Þegar bóluefninu hefur verið dreift verður unnt að taka upp þráðinn og bólusetja fólk sem er á biðlista eftir inflúensubólusetningu.

  • Bólusetning hefst þannig á nýjan leik miðvikudaginn 16. desember og þá ganga þeir fyrir sem hafa skráð sig á biðlista.
  • Tekið er við nýjum pöntunum vegna bólusetningar frá og með mánudegi 14. desember, þ.e.a.s. á þeim heilsugæslustöðvum sem hafa ekki ráðstafað fyrir fram öllu bóluefninu í væntanlegri sendingu.
  • Bóluefni verður næst dreift um landið 6. janúar 2010 og verður tekið við pöntunum í þá sendingu eftir áramótin.

Sóttvarnalæknir beinir því til heilsugæslustöðva að gefa skýrar upplýsingar á heimasíðum sínum, og við símsvörun á hverjum stað, um gang bólusetningarinnar og helstu tímasetningar. Þetta er afar mikilvægt því staða mála er mismunandi á heilsugæslustöðvunum, eins og eðlilegt er. Þannig verður unnt á sumum heilsugæslustöðvum að bólusetja fleiri núna í desember en eru þar á biðlista en á öðrum heilsugæslustöðvum dugar ný sending bóluefnis nú ekki til að bólusetja alla þá sem hafa skráð sig í bólusetningu. Í einhverjum tilvikum kemur því röðin ekki að fólki á biðlistum fyrr en í janúar.

Mjög hefur dregið úr inflúensufaraldrinum hér á landi undanfarna daga og vikur. Þrír sjúklingar lágu í gær á Landspítala vegna veikinnar, þar af einn á gjörgæsludeild.

Í 49. viku ársins (29. nóvember-7. desember) var greint 101 inflúensulíku tilfelli. Að mati sóttvarnalæknis hafa um 60.000 manns sýkst af inflúensunni frá því að faraldurinn hófst í vor.

Um 180 manns hafa verið lagðir inn á sjúkrahús með grun um inflúensu eða staðfesta inflúensu, langflestir á Landspítala eða um 130.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum