Hoppa yfir valmynd

Frétt

15. janúar 2010 Utanríkisráðuneytið

Loftferðasamningur milli Íslands og Indlands undirritaður

undirskrift_loftferdasamnings_milli_Islands_og_Indlands
undirskrift_loftferdasamnings_milli_Islands_og_Indlands

Guðmundur Eiríksson, sendiherra Íslands á Indlandi, undirritaði samninginn fyrir hönd Íslands og Madhavan Nambiar, ráðuneytisstjóri samgönguráðuneytisins (Ministry of Civil Aviation), fyrir hönd Indlands. Þetta er fyrsti samningur ríkjanna á þessu sviði.

Samningurinn heimilar flugrekendum ríkjanna að stunda áætlunarflug með farþega til tveggja ákvörðunarstaða í hvoru ríki auk áfanga- og viðkomustaða á flugleiðinni auk víðtækara heimilda fyrir fraktflug. Samningurinn opnar einnig möguleika fyrir íslenska flugrekendur til að bjóða upp á leiguflug milli Íslands og Indlands. Samningurinn við Indland styrkir möguleika íslenskra flugrekenda sem hafa sinnt og vilja sinna verkefnum í þessum heimshluta.

Á síðasta ári voru loftferðasamningar áritaðir við eftirtalin ríki: Víetnam, Kúveit, Aserbaídsjan, Túrkmenistan, Sýrland, Dóminíska lýðveldið og Tyrkland. Þá gerðist Ísland í desember 2009 aðili að loftferðasamningi Evrópusambandsins og Bandaríkjanna sem veitir íslenskum flugrekendum aukinn rétt til flugs milli Evrópuríkja og Bandaríkjanna.

Á myndinni frá vinstri eru Guðmundur Eiríksson sendiherra, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, Dr. Manmohan Singh forsætisráðherra Indlands og Madhavan Nambiar, ráðuneytisstjóri samgönguráðuneytisins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum