Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. febrúar 2010 Dómsmálaráðuneytið

Efni um Icesave á vef Alþingis


Á vef Alþingis hefur verið safnað saman efni sem tengist setningu laga um ríkisábyrgð vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi. Efnið er tengt lögunum sem samþykkt voru í ágúst 2009 (lög nr. 96/2009) og lögunum sem Alþingi samþykkti í árslok 2009 (lög nr. 1/2010, um breytingu á fyrri lögunum). Finna má alla umfjöllun um málin á Alþingi, svo sem ræður á þingfundum og þingskjöl, sem og erindi og umsagnir sem bárust fastanefndum þingsins við afgreiðslu málanna.

Einnig eru þar samsvarandi gögn tengd umfjöllun um þingsályktun frá 5. desember 2008 um samninga um ábyrgð ríkissjóðs vegna innstæðna í útibúum íslenskra viðskiptabanka á EES-svæðinu (þingsályktun nr. 2/136).

Loks eru tenglar í gögn og opinbera vefi sem tengjast umfjöllun um Icesave-málið og þjóðaratkvæðagreiðslu um lög nr. 1/2010.

Icesave upplýsingar á vef Alþingis.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum