Hoppa yfir valmynd

Frétt

22. febrúar 2010 Dómsmálaráðuneytið

Þjóðskrá hefur opnað upplýsingaveitu fyrir kjósendur um skráningu á kjörskrá

Kjósendur geta nú kannað hvar þeir eru á kjörskrá í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars næstkomandi, á kosningavef dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins, www.kosning.is og á vef Þjóðskrár, www.thjodskra.is. Með því að slá inn kennitölu kjósanda kemur upp nafn hans, lögheimili, sveitarfélag og kjördæmi og Reykvíkingar fá einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild.

Þjóðskrá sér um gerð kjörskrárstofna, en þetta er í fyrsta sinn sem hún útbýr slíkan aðgang að kjörskrá. Samkvæmt lögum nr. 4/2010 eru á kjörskrárstofni allir íslenskir ríkisborgarar sem skráðir voru með lögheimili í ákveðnu sveitarfélagi samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 13. febrúar 2010 og fæddir eru 6. mars 1992 og fyrr. Ennfremur eru á kjörskrárstofni þeir íslenskir ríkisborgarar, sem lögheimili eiga erlendis en eiga kosningarrétt samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum