Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. mars 2010 Utanríkisráðuneytið

Ferðaviðvörun til tveggja héraða í Chile

Utanríkisráðuneytið varar við ferðum til héraðanna Maule og Biobio í Mið-Chile í kjölfar jarðskjálfta á svæðinu s.l. laugardag. Í höfuðborg Biobio héraðs, Concepcion, hafa orðið miklar skemmdir. Stjórnvöld í Chile hafa lýst yfir neyðarástandi í þessum tveimur héruðum.

Hægt er að ná í Borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins á skrifstofutíma og er neyðarvakt allan sólarhringinn í síma 545-9900. Einnig er hægt að senda tölvupóst til borgaraþjónustunnar á netfangið [email protected].

Utanríkisráðuneytið mun áfram fylgjast grannt með framvindu mála.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum