Vistvæn innkaup - ráðstefna 5. mars
Umhverfisráðuneytið og fjármálaráðuneytið boða til ráðstefnu um vistvæn innkaup á Grand Hótel föstudaginn 5. mars 2010. Ráðstefnan er öllum opin og fer skráning fram á heimasíðu umhverfisráðuneytisins.
Dagskrá:
- 8.00 Mæting og morgunverður í Gullteigi á Grand Hótel.
- 8.30 Setning ráðstefnunnar. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.
- 8.40 Stefna ríkisins í vistvænum innkaupum. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra.
- 9.00 Initiative and action plans on public procurement. Rikke Dreyer, verkefnisstjóri SKI, innkaupaþjónusta ríkis og sveitarfélaga í Danmörku.
- 9.30 Vistvæn innkaup hjá Reykjavíkurborg. Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar.
- 9.40 Vistvæn innkaup út frá sjónarhorni minni sveitarfélaga. Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri í Stykkishólmi.
- 9.50 Pallborðsumræður.
Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar.
Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa.
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri í Stykkishólmi.
Rikke Dreyer, verkefnisstjóri SKI í Danmörku.
- 10.15 Ráðstefnuslit.
Fundarstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir, forseti Bandalags íslenskra listamanna og fyrrverandi umhverfisráðherra. Ráðstefnan er öllum opin og er aðgangur ókeypis. Hægt er að skrá sig til þátttöku á heimasíðu umhverfisráðuneytisins.
Verkefnið Vistvæn innkaup er með heimasíðuna vinn.is.