Hoppa yfir valmynd

Frétt

13. apríl 2010 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Víðtækt samstarf ráðuneytis og Umhverfisstofnunar

Ársfundur Umhverfisstofnunar 2010. Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður umhverfisnefndar Alþingis, Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra.
Ársfundur Umhverfisstofnunar 2010

Umhverfisráðuneytið vinnur nú að mörgum verkefnum á sviði umhverfisverndar í góðu samstarfi við Umhverfisstofnun, þar á meðal að endurskoðun á náttúruverndarlögum, reglugerð um kjölfestuvatn og reglugerð um brennisteinsvetni. Þetta var meðal þess sem kom fram í ávarpi Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra á ársfundi Umhverfisstofnunar 9. apríl síðastliðinn.

Í ávarpi sínu ræddi Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, um umhverfisgæði og náttúruauðlindir. Hún lagði áherslu á mikilvægi þess að Ísland færði sig í átt að grænu hagkerfi á komandi árum. Margt þyrfti að koma til í því sambandi, t.d. umhverfismerkingar, styrkt náttúruverndarlöggjöf og grænir skattar.

Um 180 manns mættu á ársfundinn og þar voru flutt 15 stutt erindi um nokkur af þeim fjölmörgu verkefnum sem Umhverfisstofnun vann að á síðasta ári auk þess sem Nils Hallberg frá sænsku Umhverfisstofnuninni flutti um fugla- og búsvæðistilskipun ESB.

Hægt er að skoða upptökur frá fundinum á vef Umhverfisstofnunar.

Ræða umhverfisráðherra í heild sinni.

Frétt um ársfundinn á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum