Hoppa yfir valmynd

Frétt

20. apríl 2010 Utanríkisráðuneytið

Afhending trúnaðarbréfs í Rúmeníu

Sturla Sigurjónsson afhenti Traian Basescu, forseta Rúmeníu, trúnaðarbréf 12 .apríl sl. sem sendiherra Íslands þar í landi. Athöfnin fór fram í Cotroceni-höllinni í Búkarest en áður átti sendiherra fund með Bogdan Mazuru, aðstoðar-utanríkisráðherra Rúmeníu. Á þessum fundum var m.a. rætt um eflingu tvíhliða samskipta ríkjanna, umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu og hugsanlegt samstarf í orkumálum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum