Hoppa yfir valmynd

Frétt

7. maí 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

856 störf auglýst

Frá kynningunni í dag
Frá kynningunni í dag

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra kynnti í dag 856 ný störf sem spanna allt frá þáttagerð hjá Ríkisútvarpinu til rannsókna á áhrifum eldfjallaösku á flugvélahreyfla. Um er að ræða tímabundin störf sem standa námsmönnum og atvinnuleitendum til boða og nemur ráðningartímabil þeirra allt frá 6 vikum upp í 6 mánuði. Störfin eru hluti af sérstöku atvinnuátaki ríkisstjórnarinnar og verða auglýst í dagblöðum á morgun laugardaginn 8. maí. Opnað verður fyrir umsóknir miðvikudaginn 12. maí og umsóknarfrestur rennur út viku síðar. Stefnt er að því að ljúka ráðningum í flest störfin fyrir lok mánaðarins.

Fjölmörg fyrirtæki og stofnanir taka þátt í átaksverkefninu og leggja til aðstöðu, efniskostnað og verkstjórn en fá stuðning til greiðslu launa. Atvinnuleysistryggingasjóður styrkir verkefnið um 250 milljónir króna og ríkisstjórnin leggur auk þess til 106 milljónir til að tryggja að hægt sé að greiða laun sem samræmast kjarasamningum sem gilda um viðkomandi störf. Að auki munu fjölmörg sveitarfélög ráða í fjölda starfa með stuðningi Vinnumálastofnunar.

Mikill skortur hefur verið á sumarstörfum vegna efnahagsástandsins og forsvarsmenn námsmanna hafa lýst miklum áhyggjum vegna þessa. Þeir Þorkell Einarsson, formaður Sambands framhaldsskólanema, Jens Fjalar Skaptason, formaður Stúdentaráðs, og Sveinbjörn Fjölnir Pétursson frá samtökunum Atvinnuleysi - nei takk voru viðstaddir blaðamannafundinn til að kynna sér úrval þeirra starfa sem eru í boði.

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra:
Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherraÞetta eru allt ný störf til að sinna tímabundnum verkefnum, ekki hefðbundnar sumarafleysingar. Sum störfin teygjast fram á vetur. Við báðum starfsfólk ríkisfyrirtækja og stofnana um að hugsa út fyrir kassann og segja okkur hvaða verkefni hefðu lengi staðið til, en ekki verið mannafli til að sinna. Niðurstaðan er rúmlega áttahundruð og fimmtíu ótrúlega fjölbreytt störf, innan- og utandyra, allt í kringum landið og uppi á hálendinu. Það er skynsamlegra að fjárfesta í verkum sem þarf að vinna frekar en að borga fólki bætur fyrir að gera ekki neitt. Mestu máli skiptir að hér fær fjöldi fólks úr röðum atvinnulausra og námsmanna atvinnu á næstunni og verða þannig virkir þátttakendur í samfélaginu.

 Á meðal þeirra starfa sem auglýst verða eru:

  • Örnefnaskráning
  • Gróðurkortagerð
  • Þróun seltuvirkjunar
  • Skráning á tvíhliða samningum Íslands og ESB
  • Gerð landnýtingaráætlunar fyrir hálendið
  • Fréttaveita sprotafyrirtækja
  • Markaðsrannsóknir
  • Ræða við eldra fólk, staðsetja og skrá sögu eyðibýla í þjóðgarði Snæfellsjökuls
  • Hreinsun úr geymslum sjúkrahússins á Akureyri
  • Staðarhaldari í Þingeyrarkirkju
  • Skráning á yfirnáttúrlegum minnum í fornaldarsögu Norðurlanda
  • Rannsóknir á áhrifum eldfjallaösku á flugvélahreyfla
  • Skráning á 50.000 lengdarmetrum af borkjörnum
  • Stígagerð og stikun gönguleiða í Vatnajökulsþjóðgarði
  • Mótun hönnunarstefnu fyrir Ísland
  • Vöktun flúors í vatnsbólum og túnum undir Eyjafjöllum
  • Rannsóknir á þýskum útboðsmarkaði
  • Markaðssetning á netinu
  • Endurskoðun lyfjalaga
  • Skráning friðlýstra kirkjugripa
  • Vefsíðugerð fyrir Listasafn Íslands
  • Verkamannastörf með sjálfboðaliðum á friðlýstum svæðum
  • Útvarpsþáttagerð hjá Ríkisútvarpinu
  • Grisjun þjóðskóga með keðjusög
  • Viðhald á veðurstöðvum
  • Ástandsskoðun á borholum
  • Niðurrif á úreltum sauðfjárveikivarnagirðingum

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum