Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. maí 2010 Innviðaráðuneytið

Dagur upplýsingatækninnar 2010

Dagur upplýsingatækninnar 2010 verður haldinn 20. maí nk. Að þessu sinni verða 2 ráðstefnur haldnar á UT-deginum og er hægt að taka þátt í þeim báðum eða velja aðra þeirra.  Báðar ráðstefnurnar verða í Salnum í Kópavogi.  Í lok dagsins verða Upplýsingatækniverðlaun Ský veitt og boðið verður uppá léttar veitingar.

Hvernig má standa að nýsköpun í opinberum rekstri og hverju getur hún skilað?
Reynsla annarra þjóða, íslensk dæmi um nýja afurð, ný vinnubrögð, nýja mælikvarða

20. maí kl. maí kl. 10:30- 12:15 í Salnum Kópavogi


Að ráðstefnunni standa Stofnun stjórnsýslufræða og Félag forstöðumanna ríkisstofnana

Erindi flytja:

  • Su Maddock, forstöðumaður The Whitehall Innovation Hub,
  • Ómar H. Kristmundsson, dósent í stjórnsýslufræðum við H.Í.,
  • Jón Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri Trackwell,
  • Sóley Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu Vestfjarða um málefni fatlaðra,
  • Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs,
  • Guðmundur Hannesson forstöðumaður ráðgjafasviðs Ríkiskaupa,
  • Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar

Skráning og nánari upplýsingar á www.sky.is


Horft til framtíðar
Ráðstefna UT-dagsins

20. maí kl. 12:00 – 17:00 í Salnum Kópavogi


Að ráðstefnunni standa forsætisráðuneytið, Skýrslutæknifélag Íslands, Samtök upplýsingatæknifyrirtækja, Stofnun stjórnsýslufræða og Félag forstöðumanna ríkisstofnana.

Skráning og nánari upplýsingar á www.sky.is

12:00    Skráning og afhending ráðstefnugagna
Létt hádegissnarl frá kl. 12:00 - 13:00

Spjall með sérfræðingum – umræðuefni eru eftirfarandi:

  • Útflutningur á hugbúnaði
    Andri Marteinsson, verkefnisstjóri, Björn H. Reynisson, verkefnisstjóri og Hermann Ottósson, forstöðumaður hjá Útflutningsráði
  • Skattalegt umhverfi og sjóðir fyrir upplýsingatækni- og nýsköpunarfyrirtæki
    Jón Ásgeir Tryggvason, skrifstofustjóri hjá Ríkisskattstjóra, Sigurður Björnsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs, Elísabet Andrésdóttir, sviðsstjóri alþjóðasviðs, og Aðalheiður Jónsdóttir, kynningarstjóri hjá Rannís
  • Rafrænir reikningar- staðlar og innleiðing
    Ragnar T. Jónasson, formaður tækninefndar FUTum grunngerð rafrænna viðskipta og Baldur M. Bragason, sérfræðingur hjá Fjársýslu ríkisins
  • Rafræn auðkenning og rafræn eyðublöð á Ísland.is
    Rebekka Rán Samper, verkefnisstjóri Ísland.is og Halla Björg Baldursdóttir, verkefnisstjóri í rafrænni stjórnsýslu í forsætisráðuneyti
  • Rafræn skilríki – útgáfa og notkun
    Haraldur A. Bjarnason, sérfræðingur í fjármálaráðuneyti, Guðmundur Guðmundsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Landsbankans


13:00    Ávarp: Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra

13:15    Breytingar á skipulagi upplýsingatækni- og umbótamála hjá ríkinu
Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneyti

13:35    Sóknaráætlun 20/20 – Framtíðarsýn um tæknilega innviði samfélagsins
Dagur B. Eggertsson, formaður stýrihóps 20/20

13:55    Árangursríkt samstarf opinberra aðila og einkaaðila - Videntifier forensics
Steinarr Kr. Ómarsson, lögreglufulltrú hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu

14:15    Netumsóknarkerfi fyrir atvinnuleysisbætur - Hvaða hindranir þurfti að yfirstíga og hver var ávinningurinn?
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar

14:30    Kaffi og spjall með sérfræðingum

14:50    Hvernig er hægt að búa í haginn fyrir vaxandi UT-iðnað?
Hilmar Pétursson, formaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja og framkvæmdastjóri CCP

15:10    Verðmætasköpun, útflutningur og ný atvinnutækifæri

  • Helgi Helgason, rekstrarstjóri gagnavers Verne Global
  • Magnús Ingi Óskarsson, Strategic Architect, Sabre Airline Solutions
  • Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentor
  • Jón Kristjánsson, framkvæmdastjóri Manna og músa
  • Stefán Hrafnkelsson, framkvæmdastjóri Betware

16:00    Upplýsingatækniverðlaun Skýrslutæknifélags Íslands

Ávarp og verðlaunaafhending: Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra

Léttar veitingar

17:00    Ráðstefnuslit

Ráðstefnustjóri: Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum