Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. maí 2010 Dómsmálaráðuneytið

Alls 185 listar með 2846 einstaklingum í framboði við sveitarstjórnarkosningarnar 29. maí 2010

Alls eru 185 listar í framboði til 76 sveitarstjórna í kosningunum 29. maí næstkomandi. Á listunum eiga sæti 2846 einstaklingar, eða ríflega 1,2% kjörgengra einstaklinga í landinu.

Alls eru 185 listar í framboði til 76 sveitarstjórna í kosningunum 29. maí næstkomandi. Á listunum eiga sæti 2846 einstaklingar, eða ríflega 1,2% kjörgengra einstaklinga í landinu. Flestir framboðslistar eru í Reykjavíkurborg, eða átta talsins, sjö í Kópavogsbæ og sex í Akureyrarkaupstað. Upplýsingar um framboð í öllum sveitarfélögum á landinu eru nú komnar inn á kosningavef dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins, www.kosning.is.

Listakosningar í 54 sveitarfélögum
Í 54 sveitarfélögum hafa verið lagðir fram fleiri en einn listi og mun því hlutfallskosning fara þar fram. Kosning er þá bundin við framboð á listum og fulltrúar á hverjum lista ná kjöri í hlutfalli við það atkvæðamagn sem listinn fær.

Óbundnar kosningar í 18 sveitarfélögum
Óbundnar kosningar verða í 18 sveitarfélögum þar sem enginn listi kom fram. Í óbundnum kosningum eru allir kjósendur í sveitarfélaginu í kjöri, nema þeir sem löglega eru undanþegnir skyldu til að taka kjöri og hafa fyrir fram skorast undan því. Kjósendur skrifa þá nöfn og heimilisföng aðal- og varamanna á kjörseðilinn.

Óbundnar kosningar fara fram í eftirtöldum sveitarfélögum:
Dalabyggð
Eyja- og Miklaholtshreppi
Helgafellssveit
Skorradalshreppi
Árneshreppi
Bæjarhreppi
Kaldrananeshreppi
Reykhólahreppi
Akrahreppi
Skagabyggð
Grýtubakkahreppi
Langanesbyggð
Svalbarðshreppi
Svalbarðsstrandarhreppi
Tjörneshreppi
Borgarfjarðarhreppi
Fljótsdalshreppi
Ásahreppi

Sjálfkjörið í fjórum sveitarfélögum
Í eftirtöldum fjórum sveitarfélögum kom aðeins fram einn listi og er því sjálfkjörið í þær sveitarstjórnir:
Tálknafjarðarhreppi
Sveitarfélaginu Skagaströnd
Breiðdalshreppi
Djúpavogshreppi

Sjá nánar á vefnum www.kosning.is

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum