Hoppa yfir valmynd

Frétt

9. júní 2010 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 2/2010

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

  1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 23.850
  2. Gisting í einn sólarhring kr. 15.100
  3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag, kr. 8.750
  4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 4.375

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2010. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 3/2009 dags. 29. október 2009.

Ríkiskaup hefur náð hagstæðum rammasamningum við hótel og gistihús um gistingu og veitingar fyrir ríkisstarfsmenn á ferðalögum innanlands. Nánari upplýsingar um samningana er að finna á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is.

Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga og nýir samningar um gistingu og veitingar verði kynntir starfsfólki.

Vakin er athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: http://www.fjarmalaraduneyti.is/starfsmenn-rikisins/yfirlit/kjarasamningar/ferdakostnadur/

Reykjavík, 8. júní 2010.
Ferðakostnaðarnefnd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum