Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. júní 2010 Forsætisráðuneytið

Dómsmála- og mannréttindaráðherra fundaði með mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna

Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra fundaði í dag með fr. Navanethem Pillay, mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna.

Navi Pillay og Ragna Árnadóttir.
Navanethem Pillay, mannréttindafulltrúi Sþ, og Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra.

Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra fundaði í dag með fr. Navanethem Pillay, mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna.

Kynnti Pillay hlutverk Sameinuðu þjóðanna við að efla og vernda mannréttindi og þá aðstoð sem þær geta veitt þjóðum í mannréttindamálum. Þá voru m.a. rædd tilmæli sem Sameinuðu þjóðirnar hafa beint til Íslands í mannréttindamálum og hlutverk og nauðsyn þjóðbundinna mannréttindastofnana.

Pillay hefur gegnt stöðu mannréttindafulltrúa SÞ í um það bil tvö ár. Hún er frá Suður-Afríku, lögfræðingur að mennt. Hún er fimmti mannréttindafulltrúi Sþ frá því að embættið var stofnað árið1993.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum