Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. júlí 2010 Heilbrigðisráðuneytið

Segir upp sem forstjóri Landspítala

Hulda Gunnlaugsdóttir forstjóri Landspítala hefur sagt starfi sínu lausu. Forstjóri spítalans er skipaður af heilbrigðisráðherra, samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, og verður starfið auglýst fljótlega.

Hulda var ráðin forstjóri Landspítalans frá 1. september 2008. Hún fékk af persónulegum ástæðum leyfi frá störfum frá 1. október 2009 til 1. október 2010. Björn Zoëga hefur gegnt starfi forstjóra í fjarveru Huldu.

Vefur Landspítala

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum