Hoppa yfir valmynd

Frétt

22. júlí 2010 Dómsmálaráðuneytið

Nefnd skipuð til þess að meta hæfni dómara

Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, hefur skipað í dómnefnd er meta skal hæfni þeirra sem sækja um dómaraembætti.

Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, hefur skipað í dómnefnd er meta skal hæfni þeirra sem sækja um dómaraembætti. Þau sem skipuð hafa verið eru Páll Hreinsson hæstaréttardómari, sem jafnframt er formaður nefndarinnar, og Stefán Már Stefánsson, fyrrverandi prófessor, sem báðir eru tilnefndir af Hæstarétti, Guðrún Agnarsdóttir læknir, sem kosin er af Alþingi, Allan Vagn Magnússon héraðsdómari, tilnefndur af dómstólaráði, og Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður, tilnefndur af Lögmannafélagi Íslands.

Varamenn, sem tilnefndir eru af sömu aðilum, eru Garðar Gíslason hæstaréttardómari, Sigríður Friðjónsdóttir vararíkissaksóknari, Eiríkur Rögnvaldsson prófessor, Gréta Baldursdóttir héraðsdómari og Katrín Helga Hallgrímsdóttir héraðsdómslögmaður.

Þegar tilnefnt var í nefndina kom fram hjá tilnefningaraðilum sú skoðun að ákvæði laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna um hvernig tilnefnt skuli í nefndir og ráð á vegum ríkisins víki fyrir ákvæðum laga um dómstóla um tilnefningu í dómnefndina. Því hefur ráðherra ákveðið að láta skoða hvort rétt sé að breyta ákvæðum dómstólalaga, sem kveða á um hvernig tilnefnt er í nefndina, með hliðsjón af ákvæðum og markmiðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum