Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. júlí 2010 Innviðaráðuneytið

Umferðarráð hvetur til varkárni og tillitssemi

Umferðaarráð minnir ökumenn og ferðamenn á að sýna varkárni og aðgæslu nú þegar umferðarþungar ferðahelgar eru framundan. Reynslan hafi sýnt að þessi árstími sé oft erfiður í umferðinni.

Einnig segir svo í ályktun umferðarráðs: Mikill árangur hefur náðst í fækkun umferðarslysa á undanförnum árum en þrátt fyrir það verðum við að halda vöku okkar og ekki missa sjónar á því að aldrei má slaka á í umferðaröryggisstarfinu. Ísland má alls ekki við því að missa fólk í bílslysum. Við verðum að taka höndum saman og gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll og limlestingar í umferðinni.

Með tilkomu Landeyjarhafnar má gera ráð fyrir aukinni umferð á Suðurlandsvegi og þá ekki síst ungs fólks á leið til og frá Vestmanneyjum um verslunarmannahelgina. Stjórn umferðarráðs beinir því sérstaklega til vegfarenda á þessari leið að aka varlega og sýna tillitssemi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum