Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. september 2010 Innviðaráðuneytið

Reglugerð um flugumferðarþjónustu til umsagnar

Drög að reglugerð um flugumferðarþjónustu er nú til umsagnar hjá ráðuneytinu. Þeir sem þess óska geta sent umsagnir sínar á póstfangið [email protected] til 29. september næstkomandi.

Með reglugerðadrögunum er innleiddur í íslenskan rétt viðauki nr. 11 við Chicago samninginn um alþjóðlegt almenningsflug (Convention on International Civil Aviation) en hann fjallar um flugumferðarþjónustu.

Ísland hefur verið aðili að Chicago samningnum frá árinu 1947 og hefur ákvæðum hans verið framfylgt hér á landi. Í október er fyrirhuguð allsherjar úttekt Alþjóðaflugmálastjórnarinnar (ICAO) á flugmálum á Íslandi og af því tilefni hefur verið ráðist í að innleiða með formlegum hætti viðauka við samninginn. Eru meðfylgjandi reglugerðardrög þáttur í þeirri innleiðingu.

Uppsetning gerðarinnar er með þeim hætti að reglugerðin sjálf samanstendur af nokkrum almennum ákvæðum en í viðauka við gerðina eru nánari efnisákvæði. Viðaukinn er hluti af reglugerðinni. Reglugerðin fjallar m.a. um þjónustusvæði, markmið flugumferðarþjónustu, veitingu flugstjórnarþjónustu o.s.frv.

Setning reglugerðarinnar felur ekki í sér efnislega breytingu á þeim kröfum sem gerðar eru til flugumferðarþjónustu enda hefur ákvæðum viðauka 11 við Chicago samninginn almennt verið framfylgt hér á landi.

Sérstaklega skal tekið fram að ástæða hins stutta umsagnarfrests er vegna takmarkaðs tíma til frágangs og útgáfu reglugerðarinnar áður en úttekt Alþjóðaflugmálastofnunarinnar verður gerð hér á landi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum