Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. október 2010 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 3/2010

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

  1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 19.100
  2. Gisting í einn sólarhring kr. 10.350
  3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag, kr. 8.750
  4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 4.375

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. október 2010. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2010 dags. 8. júní 2010.

Nefndin fer þess á leit við viðkomandi ráðuneyti að þau kynni efni þessarar auglýsingar þeim stofnunum og fyrirtækjum sem undir þau heyra.

Ennfremur er vakin athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur.

Reykjavík, 1. október 2010.
Ferðakostnaðarnefnd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum