Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. október 2010 Utanríkisráðuneytið

Við tryggjum ekki eftir á

Ég hef sem utanríkisráðherra lagt mikla áherslu á að samtök þeirra, sem eiga mikilla hagsmuna að gæta gagnvart samningnum um aðild að Evrópusambandinu, komi ríkulega að undirbúningi hans. Þeir sem best þekkja einstaka málaflokka eru líklegastir til að skilja best hagsmuni og möguleika sinna atvinnugreina. Þannig verður því samningurinn bestur fyrir alla.

Fulltrúar einstakra atvinnugreina verða að taka þann möguleika inn í sína reikninga að aðild verði að lokum samþykkt. Þá er eins gott að samningurinn verði sem bestur fyrir hag þeirra umbjóðenda. Þessvegna ríður á fyrir hagsmuni einstakra samtaka, að við höfum sjálfstraust og innri styrk til að vinna saman til að gagnast Íslandi sem best. Það gildir um bændur jafnt sem aðra. Við tryggjum ekki eftir á.

Fyrir einstakar atvinnugreinar er óráð að lifa í þeirri trú að samningarnir verði dregnir til baka, þeim frestað, eða hætt við þá. Það verður ekki gert. Fyrir því er hvorki meirihluti á Alþingi né meðal þjóðarinnar. Það myndi laska ímynd Íslands enn frekar og væri andstætt hagsmunum þjóðar sem er að leita að leiðum til að brjótast úr miklum erfiðleikum.

Íslendingar standa á krossgötum. Ein leið okkar inn í betri framtíð gæti legið í gegnum aðild að Evrópusambandinu. Við eigum þar kost á traustara og stöðugra efnahagsumhverfi sem mun stuðla að því að skapa þau 30 þúsund störf sem þurfa að verða til á næstu tíu árum til að eyða atvinnuleysi á Íslandi. Reynsla smáþjóða, þar á meðal Eista, Maltverja og Slóvaka, sýnir ljóslega að erlendar fjárfestingar aukast í kjölfarið. Við fengjum þar einnig kost á að taka upp nýja og miklu öflugri mynt, evruna, ef við viljum. Íslendingar eiga að fá að velja sjálfir hvort þeir kjósa að fara þessa leið þegar fullgerður samningur liggur á borðinu.

Samningarnir um aðild eru nú komnir af stað eftir að ég hóf þá formlega fyrir Íslands hönd 27. júlí. Það væri ábyrgðarleysi gagnvart okkur sjálfum og umheiminum að hætta í miðri á. Þeir sem berjast fyrir því í krafti úreltrar kreddufælni gegn útlöndum eða vegna innri valda­baráttu í flokkum eru að vinna hagsmunum Íslands ógagn.

Greinin í Fréttablaðinu 11. október 2010.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum