Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. október 2010 Forsætisráðuneytið

Til hamingju Evrópumeistarar!

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur sent kvennaliði Gerplu í hópfimleikum hamingjuóskir með framúrskarandi og einstæðan árangur á Evrópumótinu í hópfimleikum sem fram fór í Malmö í Svíþjóð um helgina þar sem þær unnu til gullverðlauna.

Forsætisráðherra hefur jafnframt sent landsliði stúlkna í hópfimleikum hamingjuóskir með frábæran árangur þeirra í keppni landsliða á Evrópumótinu þar sem þær höfnuðu í 3. sæti.

Með árangri íslensku kvennanna á mótinu hafa þær skipað sér í hóp bestu íþróttamanna sem Ísland hefur átt fyrr og síðar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum