Hoppa yfir valmynd

Frétt

28. október 2010 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Kynningarfundur um norræna styrki

Fánar Norðurlandanna
Norden.org

Í tengslum við þing Norðurlandaráðs 2. - 4. nóvember verður efnt til kynningarfunda um samnorræna styrkjamöguleika. Margar samnorrænar stofnanir senda fulltrúa á þingið og var tækifærið nýtt til þess að vera með sameiginlegar kynningar á þeim stofnunum sem veita mestu fé í styrki. Styrkirnir eru ætlaðir fyrirtækjum, stofnunum, félagasamtökum og einstaklingum.

Fundirnir verða þrír og eru þemaskiptir:

  • Styrkir til menningar og lista, 2. nóvember kl. 15-17, Listaháskóli Íslands.
  • Styrkir til nýsköpunar og rannsókna, 3. nóvember kl. 9-11, Norræna húsið.
  • Styrkir til umhverfis- og orkumála, 3. nóvember kl. 14-16, Norræna húsið.

Skráning á kynningarfundina fer fram á netfanginu: [email protected].  - nauðsynlegt er að tilkynna á hvaða fund er verið að skrá mætingu. Vinsamlegast tilkynnið mætingu fyrir 1. nóvember. Fundirnir eru haldnir í samvinnu við Norræna húsið.

Nánari upplýsingar um fundina er að finna á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Dagskrá Norðurlandaráðsþings 2010.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum