Hoppa yfir valmynd

Frétt

29. október 2010 Forsætisráðuneytið

Ríkisstjórnin styrkir Evrópumeistarana í Gerplu um þrjár milljónir

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að styrkja kvennalið Gerplu,  nýkrýnda Evrópumeistara í hópfimleikum, um þrjár milljónir króna.

Kvennalið Gerplu í fimleikum náði þeim einstaka árangri að vinna til gullverðlauna á Evrópumótinu í hópfimleikum, sem fram fór í Malmö í Svíþjóð í október 2010.

Ríkisstjórnin fagnar þessum frábæra árangri liðsins og samþykkti í tilefni af honum að veita liðinu þrjár milljónir króna til undirbúnings fyrir þátttöku þess í Norðurlandamóti sem fram fer í Noregi árið 2011.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum