Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. nóvember 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Leiðrétting á yfirlýsingum um stöðu Sólheima

Skýrt er kveðið á um stöðu sjálfseignarstofnana sem þjónusta fólk með fötlun í áætlun um flutning málefna fatlaðra til sveitarfélaga. Rekstur Sólheima er tryggður, líkt og annarra sjálfseignarstofnana, þótt forsvarsmenn Sólheima hafi hafnað boði ráðuneytisins um endurnýjun þjónustusamnings.

Guðmundur Á. Pétursson, framkvæmdastjóri Sólheima í Grímsnesi, hefur að undanförnu komið fram í fjölmiðlum og látið að því liggja að áframhaldandi rekstur stofnunarinnar sé í hættu vegna flutnings málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga um næstu áramót. Guðmundur segir réttilega að þjónustusamningur við stofnunina sé útrunninn en heldur því ranglega fram að ráðuneytið hafi hafnað umleitunum hans um endurnýjun samningsins.

Þjónustusamningur ráðuneytisins við Sólheima rann út í lok árs 2008. Fljótlega hófust viðræður um endurnýjun hans og í maí 2009 gerði ráðuneytið forsvarsmönnum Sólheima formlegt boð um endurnýjun þjónustusamningsins. Viðræður um þetta leiddu ekki til samkomulags og öðru boði um sama efni sem ráðuneytið lagði fyrir fulltrúa Sólheima á fundi 21. desember 2009 var hafnað. Stofnunin hefur engu að síður fengið greitt rekstrarfé á fjárlögum samkvæmt ákvörðun Alþingis. 

Flutningur málefna fatlaðra til sveitarfélaga

Verkefnisstjórn sem unnið hefur að flutningi málefna fatlaðra til sveitarfélaga hefur gert skýra áætlun um hvernig staðið skuli að flutningnum gagnvart sjálfseignarstofnunum sem þjónusta fólk með fötlun. Þessi áform voru kynnt forsvarsmönnum Sólheima á fundi ráðuneytisins með þeim þann 18. maí síðastliðinn. Ráðuneytið hélt annan fund með forsvarsmönnum Sólheima og annarra sjálfseignarstofnana 9. september síðastliðinn þar sem nákvæmlega var skýrt hvernig staðið verður að yfirfærslunni.

Eins og fram kemur í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 6. júlí 2010 verða fjármunir til málaflokksins tryggðir með auknum tekjustofnum. Útsvarshlutfall sveitarfélaga verður hækkað um 1,2% gegn samsvarandi lækkun á tekjuskattshlutfalli ríkisins. Af þessu leiðir að einstök verkefni, þar með talinn rekstur sjálfseignarstofnana, verður ekki lengur á fjárlögum. Fyrir liggur að einstök sveitarfélög eða sveitarfélög sem sameinast um þjónustusvæði munu við tilfærsluna annast samninga við sjálfseignarstofnanir um rekstur þeirra. Árið 2011 verður byggt á fjárframlögum eins og þau voru ákveðin í fjárlögum ársins 2010.  

Ámælisvert að vekja ástæðulausan ótta hjá íbúum Sólheima

Félags- og tryggingamálaráðuneytið átelur framgöngu framkvæmdastjóra Sólheima í fjölmiðlum þar sem hann hefur ítrekað gefið í skyn að þjónusta Sólheima verði skert og að heimilinu verði jafnvel lokað. Þetta er sérstaklega alvarlegt gagnvart íbúum Sólheima og aðstandendum þeirra þar sem yfirlýsingar af þessu tagi eru til þess fallnar að vekja með þeim ótta og óvissu um framtíð sína.

Það er rangt að halda því fram að flutningur málefna fatlaðra til sveitarfélaga setji rekstur Sólheima í uppnám. Fjármunir til reksturs stofnunarinnar eru tryggðir við yfirfærsluna og fráleitt að gefa í skyn að mögulega þurfi að loka Sólheimum vegna yfirfærslunnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum