Hoppa yfir valmynd

Frétt

8. nóvember 2010 Forsætisráðuneytið

Ríkisstjórnin fundar á Suðurnesjum

Reglulegur fundur ríkisstjórnarinnar á morgun, þriðjudaginn 9. nóvember, verður haldinn í Reykjanesbæ, nánar tiltekið í Víkingaheimum sem eru staðsettir að Víkingabraut 1 í Reykjanesbæ. Áður en ríkisstjórnarfundurinn hefst mun ríkisstjórnin eiga fund með bæjar- og sveitarstjórum á Suðurnesjum þar sem málefni Suðurnesja verða til umræðu sem og leiðir til að efla atvinnu og byggð á svæðinu. Að loknum ríkistjórnarfundi verður blaðamannafundur og má áætla að hann hefjist um kl. 11:30.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum