Hoppa yfir valmynd

Frétt

17. nóvember 2010 Utanríkisráðuneytið

Rýnifundi um félagarétt lokið

Rýnifundi um 6. kafla löggjafar Evrópusambandsins, félagarétt, lauk í Brussel í gær. Á fundinum, sem stóð í einn dag, báru sérfræðingar Íslands og ESB saman löggjöf í þessum samningskafla en í honum er að finna reglur annars vegar um félagarétt og hins vegar um reikningsskil fyrirtækja og endurskoðun. 6. kafli er hluti af EES-samningnum og var á fundinum rætt um framkvæmd reglnanna hérlendis . Ísland hefur þegar tekið upp löggjöf á þessu sviði og ekki er um neinar undanþágur eða aðlaganir að ræða. Ef taka á upp gerðir vegna aðildar að ESB er ekki að sjá að breyta þurfi lögum eða reglum. Greinargerð samningahópsins sem fjallar um  félagarétt (EES II) hefur verið birt á vefnum esb.utn.is en þar er að finna nánari útlistun á viðfangsefni kaflans.

* * *

Löggjöf Evrópusambandsins skiptist í alls 33 kafla, auk kafla um stofnanir og önnur mál. Áður en eiginlegar samningaviðræður hefjast um einstaka kafla fer fram rýnivinna þar sem löggjöf Íslands og ESB er borin saman til að greina hvar íslensk löggjöf er frábrugðin og hvað semja þarf um. Tveir rýnifundir munu fara fram um flesta samningskafla. Á þeim fyrri kynnir framkvæmdastjórnin löggjöf ESB og á þeim síðari kynnir Ísland sína löggjöf. Í þeim köflum sem falla undir EES-samninginn og þar sem regluverkið hefur að öllu leyti verið tekið upp af Íslands hálfu, verður aðeins um einn fund að ræða.

Utanríkisráðuneytið birti á heimasíðu sinni hinn 20. október sl. tímaáætlun fyrir rýnivinnu komandi vetrar en henni lýkur í júní á næsta ári. Upplýsingar um viðfangsefni samningskafla, um samninganefnd Íslands og um skipulag viðræðnanna er að finna á heimasíðu utanríkisráðuneytisins um samningaviðræður Íslands og ESB á esb.utn.is.

Sjá greinargerð samningahóps um félagarétt
Sjá tímaáætlun vegna rýnivinnu

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum