Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. desember 2010 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Grein umhverfisráðherra í Fréttablaðinu - Náttúruvernd og ferðaþjónusta

Eftirfarandi grein Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra birtist í Fréttablaðinu 1.desember 2010.

Ferðaþjónusta á Íslandi hefur vaxið og dafnað um árabil og er orðin einn af mikilvægustu atvinnuvegum landsmanna. Tekjur af ferðamönnum námu að talið er um 155 milljörðum króna árið 2009. Hlutfall erlendra ferðamanna á íbúa er nú hærra á Íslandi en í Frakklandi, Spáni og Ítalíu og benda spár til þess að fjöldi ferðamanna gæti farið yfir milljón innan eins eða tveggja áratuga. Náttúra Íslands er sú auðlind sem ferðaþjónustan byggir á. Mikill meirihluti erlendra ferðamanna segist koma til Íslands til að upplifa náttúruna, sem er mjög ólíkt því sem þekkist í þéttbýlli löndum. Náttúra Íslands er óneitanlega stórfengleg, með eldfjöllum sínum, jöklum og fossum, en hún getur líka verið viðkvæm.

Ástand friðlýstra svæða

Nýleg greinargerð Umhverfisstofnunar um ástand friðlýstra svæða hefur vakið mikla athygli. Í henni er fjallað um okkar þekktustu ferðamannastaði sem margir hverjir hafa látið á sjá og nauðsynlegt þykir að grípa til ráðstafana ef þeir eiga ekki að missa verndargildi sitt. Geysissvæðið og Gullfoss eru hér á meðal, auk Landmannalauga og Mývatns. Þessi svæði eru meðal okkar dýrmætustu náttúrugersema.

Þetta er áhyggjuefni, en vandinn er fyrst og fremst bundinn við afmörkuð svæði og því er hægt að bregðast við honum. Bætt landvarsla, skipulag, aðstaða og stígagerð eru ekki óyfirstíganlega fjárfrekar aðgerðir, en geta skilað miklu. Það er hins vegar ekki kostur í stöðunni að gera ekki neitt. Sinnuleysi um náttúruperlur okkar er vond fyrir framtíð ferðaþjónustu og þá ímynd sem við viljum skapa af Íslandi sem ferðamannalandi. Frá sjónarhóli náttúruverndar er það einnig óásættanlegt.

Umhverfisstofnun bendir á ýmsar leiðir til að bæta ástandið sem fæstar eru mjög dýrar. Kostnaður við náttúruvernd er að mestu leyti fjármagnaður af skattfé, enda er náttúra landsins ein okkar dýrmætasta eign sem þjóðar. Það er hins vegar eðlilegt að kostnaður við aðstöðu og umbætur á fjölsóttum ferðamannastöðum sé á einhvern hátt borinn af ferðamönnum. Það er í samræmi við nytjagreiðsluregluna svokölluðu, sem er einn af hornsteinum umhverfisréttar og það er í samræmi við almenn sanngirnissjónarmið.

Umræða um gjaldtöku

Ferðamenn sýna hóflegri gjaldtöku oftast skilning ef þeir sjá að fénu er sannanlega varið í góða aðstöðu og metnaðarfulla vernd náttúrunnar sem þeir koma til að upplifa. Það eru hins vegar skiptar skoðanir um hvaða fyrirkomulag er best í þessu sambandi. Umræðan um þessi mál er brýn í ljósi vaxandi fjölda ferðamanna og aukinnar kröfu um náttúruvernd. Ferðamenn eru ekki ógn við náttúruvernd, heldur má segja þvert á móti að vaxandi ferðaþjónusta styrki kröfuna um náttúruvernd. Fyrirhyggjuleysi við móttöku ferðamanna er hins vegar ógn. Vanbúnaður í þeim efnum getur valdið skemmdum á náttúru Íslands og takmarkað möguleika ferðaþjónustu til vaxtar.

Markmið okkar er að Ísland verði eftirsóttur áfangastaður fólks sem vill sjá stórbrotna náttúru og víðerni en njóta um leið öryggis og þæginda. Við megum aldrei taka Gullfossi, Geysi, Mývatni, Skaftafelli, Þingvöllum og öðrum vinsælustu náttúruperlum okkar sem sjálfsögðum hlut. Þær eru hluti af okkar þjóðararfi og þær eru andlit okkar gagnvart umheiminum. Náttúrufegurð Íslands er grundvöllur ferðaþjónustunnar og mun vera það áfram um langa framtíð, svo fremi að við berum gæfu til að vernda náttúruna gegn átroðningi og búa henni umgjörð við hæfi.  

Svandís Svavarsdóttir
umhverfisráðherra.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum