Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. desember 2010 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Árangursstjórnunarsamningar undirritaðir

Umhverfisráðherra með forstöðumönnum stofnana ráðuneytisins
Að lokinni undirritun

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og forstöðumenn átta stofnana ráðuneytisins undirrituðu nýverið árangursstjórnunarsamninga milli umhverfisráðuneytisins og stofnana þess. Samningarnir festa í sessi samskiptaferli milli ráðuneytisins og stofnananna og eru grundvöllur áætlanagerðar, stefnumótunar og árangursmats. Markmiðið með gerð samninganna er að efla og formfesta samstarf ráðuneytisins og stofnana þess og auka gæði í starfi þeirra.

Samkvæmt samningnum eiga stofnanirnar meðal annars að gera rekstraráætlanir og  verkefnaáætlanir þar sem tiltekin markmið og mælikvarðar eru settir fram. Þá eiga stofnanirnar í upphafi hvers árs að skila ráðuneytinu niðurstöðum áætlana liðins árs og upplýsingum um hvernig og hvort settum markmiðum var náð.

Í samningunum er lögð sérstök áhersla á að jafna stöðu kynjanna í allri starfsemi stofnananna.

Stefnt er að því á fyrstu vikum næsta árs að umhverfisráðuneytið ljúki við gerð árangursstjórnunarsamninga við þær fjórar stofnanir ráðuneytisins sem út af standa. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum