Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. desember 2010 Utanríkisráðuneytið

Breytingar í utanríkisþjónustunni

Utanríkisráðherra hefur tekið ákvörðun um eftirtaldar breytingar á starfsstöðvum sendiherra í utanríkisþjónustunni:

Stefán Haukur Jóhannesson, sem verið hefur sendiherra í Brussel frá árinu 2005, flyst heim til starfa í ráðuneytinu 15. janúar nk. og heldur áfram að gegna starfi aðalsamningamanns Íslands í aðildarviðræðum við ESB.

Þórir Ibsen, sem verið hefur sendiherra í París frá árinu 2009, verður sendiherra Íslands í Brussel frá 15. janúar nk. með fyrirvara um samþykki belgískra stjórnvalda.

Berglind Ásgeirsdóttir, sem verið hefur í leyfi frá embætti sendiherra í utanríkisþjónustunni frá árinu 2007, tekur við sem sendiherra Íslands í París.

Þá hefur utanríkisráðherra ákveðið að flytja Önnu Jóhannsdóttur og Högna S. Kristjánsson úr embættum skrifstofustjóra í utanríkisþjónustunni í embætti sendiherra frá og með 1. janúar 2011.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum