Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. janúar 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Tilmæli til sveitarstjórna um hækkun fjárhagsaðstoðar

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur beint tilmælum til sveitarstjórna um að þær hækki fjárhagsaðstoð til einstaklinga þannig að mánaðarleg framfærsla þeirra verði sambærileg og hjá fólki á atvinnuleysisbótum.

Í bréfi ráðherra er bent á markmið laga um félagsþjónustu sveitarfélaga sem er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, meðal annars með því að bæta lífskjör þeirra sem standa höllum fæti. Einnig er vísað til þeirrar lagaskyldu sem hvílir á sveitarfélögum að tryggja að íbúar þeirra geti séð fyrir sér og sínum.

Vísað er til umræðu síðustu missera um erfiða stöðu þeirra sem byggja framfærslu sína á lágmarksbótum almannatrygginga atvinnuleysisbótum eða fjárhagsaðstoð sveitarfélaga. „Horft var til þessarar erfiðu stöðu þegar lágmarkstekjuviðmið til framfærslu lífeyrisþega sem búa einir var hækkað umtalsvert í janúar 2009 og verður frá og með 1. janúar 2011 rúmar 184.000 kr. Fullar atvinnuleysisbætur nema tæpum 150.000 kr. á mánuði. Grunnfjárhæð sveitarfélaganna hefur að jafnaði verið mun lægri sem getur gert fjárhagslega stöðu þeirra, sem þurfa að reiða sig eingöngu á aðstoð sveitarfélaganna, slaka í samanburði við aðra sem fá bætur frá hinu opinbera“ segir enn fremur í bréfinu.

„Velferðarráðherra ákvað að greiða atvinnuleitendum desemberuppbót í fyrsta sinn árið 2010, tæpar 45.000 kr. Þann 18. desember síðastliðinn samþykkti Alþingi breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar þar sem réttur fólks til atvinnuleysisbóta er lengdur tímabundið úr þremur árum í fjögur. Við það munu útgjöld sveitarfélaganna vegna fjárhagsaðstoðar aukast minna en ella þar sem atvinnuleitendur munu síður þurfa á fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna að halda.

Velferðarráðherra ákvað að greiða atvinnuleitendum desemberuppbót í fyrsta sinn árið 2010, tæpar 45.000 kr. Þann 18. desember síðastliðinn samþykkti Alþingi breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar þar sem réttur fólks til atvinnuleysisbóta er lengdur tímabundið úr þremur árum í fjögur. Við það munu útgjöld sveitarfélaganna vegna fjárhagsaðstoðar aukast minna en ella þar sem atvinnuleitendur munu síður þurfa á fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna að halda.

Rétt er að vekja athygli á að unnið er að gerð hóflegra neysluviðmiða á vegum velferðarráðuneytisins. Samhliða er hugað að lágmarksframfærsluviðmiðum sem verða unnin út frá neysluviðmiðunum í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Umboðsmann skuldara og fleiri hagsmunaaðila. Verður það tekið til umræðu við fyrsta tækifæri á nýju ári.

Með vísan til framangreindra atriða beinir velferðarráðherra þeim tilmælum til sveitarstjórna að þær tryggi að einstaklingar hafi að lágmarki sambærilega fjárhæð og atvinnuleysisbætur til framfærslu á mánuði.“

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum