Hoppa yfir valmynd

Frétt

6. janúar 2011 Forsætisráðuneytið

Afmælistíðindi komin út

Afmælistíðindi 1. árg. 1. tbl.
Afmælistíðindi 1. árg. 1. tbl.

Á nýársdag kom út fyrsta tölublað Afmælistíðinda, sem er kynningarrit vegna 200 ára afmælis Jóns Sigurðssonar forseta. Blaðið hefur yfir sér gamlan blæ, dálítið í anda 19. aldar blaðanna. Þar er sagt frá öllum viðburðum afmælisársins í greinum, fréttum og auglýsingum. Ráðgert er að gefa út annað tölublað þegar kemur fram á vorið og þá með ítarlegri upplýsingum um dagskráratriði, t.d. á Hrafnseyrarhátíð. Afmælistíðindum er dreift til samstarfsaðila afmælisnefndar og fjölmiðla.

Hér má nálgast blaðið á PDF-sniði.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum