Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. janúar 2011 Dómsmálaráðuneytið

Beðið svara frá indverskum yfirvöldum

Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum að undanförnu vill innanríkisráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri: Beðið er eftir viðbrögðum indverskra stjórnvalda við fyrirspurn íslenskra stjórnvalda um forsjá barns sem fæddist á Indlandi í nóvember sl. og Alþingi veitti ríkisborgararétt með lögum í desember. Unnið hefur verið að því í samvinnu við indversk stjórnvöld að varpa ljósi á réttarstöðu barnsins.

Íslensk stjórnvöld sendu í lok desember erindi til indverskra yfirvalda þar sem óskað er tiltekinna upplýsinga sem ætlað er að greiða úr óvissu um réttarstöðu barnsins, hvað varðar ríkisfang og hvort hin íslensku hjón fari með forsjá þess að indverskum lögum. Þessar upplýsingar hafa ekki borist en þegar afstaða indverskra yfirvalda liggur fyrir er vonast til að unnt verði að afhenda íslensku hjónunum vegabréf barnsins.

  • Sjá nánar um ýmis álitaefni um réttarstöðu barns við staðgöngumæðrun hér á vefnum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum