Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. janúar 2011 Forsætisráðuneytið

Ný skýrsla frá GRECO – Ísland í fremstu röð

GRECO, samtök ríkja gegn spillingu, hefur birt nýja matsskýrslu um Ísland þar sem m.a. er fjallað um gagnsæi fjárframlaga til stjórnmálaflokka hér á landi og um frammistöðu íslenskra stjórnvalda við innleiðingu 9 tilmæla um úrbætur sem samtökin hafa beint til íslenskra stjórnvalda á því sviði. Er það niðurstaða GRECO að íslensk stjórnvöld hafi nú innleitt 8 tilmæli af 9 með fullnægjandi hætti auk þess sem ein tilmælin teljast uppfyllt að hluta. Niðurstaða GRECO er staðfesting á þeim góða árangri sem náðist með þeim breytingum sem gerðar voru á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda þeirra og um upplýsingaskyldu þeirra í september sl. Skýrslan staðfestir einnig að Ísland hefur nú í öllum meginatriðum uppfyllt kröfur ráðherranefndar Evrópuráðsins eins og þær eru settar fram í tilmælum nr. (2003)4 um sameiginlegar reglur gegn spillingu í fjármögnun stjórnmálaflokka og kosningabaráttu. Hefur Ísland þar með jafnframt skipað sér í fremstu röð meðal þjóða heims á þessu sviði.

Matskýrsluna Third Evaluation Round, Interim Compliance Report on Iceland má á PDF-sniði á netinu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum