Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. janúar 2011 Utanríkisráðuneytið

Rýnifundi um rannsóknir og vísindi lokið í Brussel

 Rýnifundi um 25. kafla samningaviðræðna við Evrópusambandið, rannsóknir og vísindi, lauk í Brussel í dag. Á fundinum, sem var sá síðari af tveimur, báru sérfræðingar Íslands og ESB saman löggjöf í þessum samningskafla. Fyrir íslenska hópnum fór Harald Aspelund, formaður samningahóps um EES II málefni en 25. kafli er hluti af EES-samningnum. Ekki var rætt um undanþágur, aðlaganir eða sérlausnir, enda tengist Ísland rammaáætlunum ESB á þessu sviði nú þegar með aðild sinni að EES-samningnum.

Möguleikar EFTA/EES-ríkjanna til áhrifa á stefnumörkun í vísinda- og rannsóknamálum á vegum ESB hafa farið minnkandi í tengslum  stækkun sambandsins og fleiri samstarfsaðila á þessu sviði. Gera má ráð fyrir að aðstæður muni breytast mikið í þessu efni ef til aðildar kæmi.

Greinargerð samningahópsins sem fjallar um rannsóknir og vísindi (EES II) hefur verið birt á heimasíðunni esb.utn.is en í henni er að finna nánari útlistun á viðfangsefni kaflans. Hægt er að opna greinargerðina með því að smella hér

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum