Hoppa yfir valmynd

Frétt

21. janúar 2011 Utanríkisráðuneytið

Rýnifundi um umhverfismál lokið

Rýnifundi um 27. kafla samningaviðræðna við Evrópusambandið, umhverfismál, lauk í Brussel 19. janúar. Á fundinum, sem var sá síðari af tveimur, báru sérfræðingar Íslands og ESB saman löggjöf í þessum samningskafla. Fyrir íslenska hópnum fór Harald Aspelund, formaður samningahóps um EES II málefni en 27. kafli er hluti af EES-samningnum

Kaflinn um umhverfismál fellur undir EES-samninginn og hefur stór hluti regluverks Evrópusambandsins á sviðinu þegar verið innleiddur á grundvelli EES-samningsins. Þó stendur náttúruvernd alveg utan EES samningsins, sem er veigamikill þáttur umhverfislöggjafar Evrópusambandsins. Á meðal þeirra atriða sem rædd voru, má nefna vatnsvernd, hreinsun skólps, vöktun skóga, veiðar á villtum fuglum, náttúruverndarsvæði, refa- sel- og hvalveiðar, verndun villtra dýra og plantna og losunarheimildir.

Greinargerð samningahópsins sem fjallar um umhverfismál (EES II) hefur verið birt á heimasíðunni esb.utn.is en í henni er að finna nánari útlistun á viðfangsefni kaflans.

Sjá greinargerð samningahóps með því að smella hér.

* * *

Löggjöf Evrópusambandsins skiptist í alls 33 kafla, auk kafla um stofnanir og önnur mál. Áður en eiginlegar samningaviðræður hefjast um einstaka kafla fer fram rýnivinna þar sem löggjöf Íslands og ESB er borin saman til að greina hvar íslensk löggjöf er frábrugðin og hvað semja þarf um. Tveir rýnifundir munu fara fram um flesta samningskafla. Á þeim fyrri kynnir framkvæmdastjórnin löggjöf ESB og á þeim síðari kynnir Ísland sína löggjöf. Í þeim köflum sem falla undir EES-samninginn og þar sem regluverkið hefur að öllu leyti verið tekið upp af Íslands hálfu, verður aðeins um einn fund að ræða.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum