Hoppa yfir valmynd

Frétt

21. janúar 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Samningar og fjárlög standa

Heilbrigðisstofnanirnar á Blönduósi og á Sauðárkróki munu halda óbreyttum fjölda dvalarrýma á þessu ári en fá greitt fyrir þau í samræmi við nýtingu þeirra eins og kveðið er á um í samningum.

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherraGuðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir rétt hjá forstjóra heilbrigðisstofnunar Blönduóss að ekki hafi átt að gera kröfu um frekari hagræðingu hjá heilbrigðisstofnunum eftir að fjárlög voru samþykkt. Tilkynning til heilbrigðisstofnananna á Sauðárkróki og Blönduósi um fækkun dvalarrýma á hvorum stað um þrjú hafi byggst á misskilningi sem varði samhæfingu við framkvæmd fjárlaga vegna verkefna sem áður hafi verið á hendi tveggja ráðuneyta. 

Rekstur heilbrigðisstofnana er á föstum fjárlögum en rekstur dvalarrýma er kostaður með daggjöldum og er greitt fyrir þau í samræmi við nýtingu. Fyrir sameiningu ráðuneytanna var ábyrgð á fjárlögum gagnvart heilbrigðisstofnunum á ábyrgð heilbrigðisráðuneytisins að undanskildum dvalarrýmunum sem heyrðu undir félags- og tryggingamálaráðuneytið.

Ákvörðun um fækkun dvalarrýma hjá stofnununum tveimur hefur verið dregin til baka. Þau munu halda heimildum fyrir óbreyttum fjölda dvalarrýma á þessu ári en fá greitt fyrir þau í samræmi við nýtingu eins og kveðið er á um í samningum.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum