Hoppa yfir valmynd

Frétt

7. mars 2011 Forsætisráðuneytið

A-358/2011. Úrskurður frá 22. febrúar 2011

 

ÚRSKURÐUR

 

Hinn 22. febrúar 2011 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð í málinu A-358/2011.

 

Kæruefni og málsatvik

Með bréfi, dags. 10. september 2011, kærði [...] fréttamaður, synjun iðnaðarráðuneytisins á að afhenda honum í heild sinni bréf, dags. 18. ágúst 2010, frá Ross Beaty, forstjóra Magma Energy til iðnaðarráðherra, en til vara að fá þann hluta bréfsins þar sem Beaty lýsi því í hvað hann vilji nýta orkuna sem HS Orka hf. framleiðir. 

 

Í kæru er málsatvikum lýst þannig að í Fréttablaðinu 26. ágúst 2010 hafi birst frétt um að Beaty, forstjóri Magma Energy, hefði í bréfi til iðnaðarráðherra, dags. 18. ágúst, gefið í skyn að hann hefði lítinn áhuga á að HS Orka hf. seldi orku til álvers Norðuráls í Helguvík. Sama dag og fréttin birtist hafi kærandi óskað eftir afriti af umræddu bréfi.

 

Iðnaðarráðuneytið svaraði beiðni kæranda með bréfi sem einnig er dagsett 26. ágúst 2010. Segir þar að í erindi Magma Energy til iðnaðarráðherra sem kærandi hafi óskað aðgangs að komi fram ákveðnar upplýsingar varðandi viðskipta- og samkeppnislegan rekstur fyrirtækisins, áherslur og viðskiptahagsmuni. Að mati ráðuneytisins falli þær upplýsingar undir 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 og verði því ekki afhentar. Jafnframt komi fram í bréfinu ákveðnar upplýsingar sem lýsi persónulegum skoðunum og falli að mati ráðuneytisins undir einkamálefni einstaklinga í skilningi fyrri málsliðar 5. gr. upplýsingalaga. Ráðuneytið hafi leitað álits þess aðila sem í hlut á um afstöðu hans til þess að umbeðnar upplýsingar verði veittar og hafi hann hafnað því. Með vísan til þessa sé heimild ráðuneytisins til afhendingar á afriti af umræddu bréfi takmörkuð af 5. gr. upplýsingalaga. Samkvæmt 7. gr. sömu laga féllst ráðuneytið hins vegar á að afhenda aðra hluta bréfsins.

 

Í kæru sinni bendir kærandi á að hann telji það ekki fá staðist að ráðuneytið hafni því að veita aðgang að upplýsingum sem lýsi persónulegum skoðunum. Í þeim hluta bréfsins er hann hafi fengið afhentar sé nokkuð um að lýst sé persónulegum skoðunum Ross Beaty. Það að ráðuneytið handvelji hvaða persónulegu skoðanir séu einkamálefni einstaklinga og hverjar ekki teljist ærið vafasamt. Jafnframt vísar kærandi til þess að meint orð Ross Beaty í umræddu bréfi lúti að því til hvers orkan frá HS Orku verði nýtt. Það skipti töluverðu máli fyrir umhverfið hvort orkan sé nýtt í álver í Helguvík eða eitthvað annað. Í því ljósi byggi kærandi beiðni sína einnig á ákvæðum laga um upplýsingarétt um umhverfismál.

 

Málsmeðferð

Kæra máls þessa barst úrskurðarnefnd um upplýsingamál 13. september 2010. Kæran var send iðnaðarráðuneytinu með bréfi, dags. 14. sama mánaðar. Var ráðuneytinu veittur frestur til 23. september til að gera athugasemdir og afhenda úrskurðarnefndinni þau gögn sem kæran lyti að. Með bréfi nefndarinnar, dags. 22. september, var umræddur frestur framlengdur til 28. sama mánaðar. Svar iðnaðarráðuneytisins, ásamt gögnum málsins, barst úrskurðarnefndinni 27. september 2010. Í umræddu bréfi ráðuneytisins er ítrekað vísað með beinum hætti og með endursögn í þær upplýsingar sem ráðuneytið hafði synjað kæranda um aðgang að. Kæranda var því ekki afhent umrætt bréf ráðuneytisins til athugasemda. Hafði nefndin þar einnig í huga að í bréfi ráðuneytisins komu ekki fram nýjar upplýsingar eða nýjar röksemdir af hálfu ráðuneytisins umfram það sem þegar hafði fram komið í synjun þess, dags. 26. ágúst 2010, á upphaflegri beiðni kæranda.

 

Með vísan til 31. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 þykir ekki ástæða til að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins um málsatvik og sjónarmið aðila en úrskurðarnefndin hefur haft hliðsjón af þeim við úrlausn málsins.

 

Niðurstaða

Eins og fram er komið fer kærandi fram á aðgang að bréfi Ross Beaty, forstjóra Magma Energy, dags. 18. ágúst 2010, til iðnaðarráðherra í heild sinni. Ráðuneytið synjaði kæranda um aðgang að hluta af umræddu bréfi, sbr. bréf þess til kæranda, dags. 26. ágúst 2010 með vísan til 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996. Kærandi hefur í kæru sinni jafnframt vísað til laga nr. 23/2006, um upplýsingarétt um umhverfismál.

 

Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laga nr. 23/2006, um upplýsingarétt um umhverfismál, ber stjórnvöldum þeim sem falla undir 2. gr. laganna að veita almenningi, sé þess óskað, aðgang að fyrirliggjandi upplýsingum um umhverfismál, með þeim takmörkunum sem greinir í 6. gr. laganna. Í 1. tölul. 1. mgr. 2. gr. laganna  kemur fram að lögin gildi um „öll stjórnvöld sem falla undir gildissvið upplýsingalaga“. Iðnaðarráðuneytið telst til stjórnvalda sem falla undir gildissvið upplýsingalaga, sbr. 1. gr. þeirra laga. Ráðuneytið fellur þar með einnig undir gildissvið laga nr. 23/2006. Í 3. gr. laganna er nánar skilgreint hvaða upplýsingar teljist „upplýsingar um umhverfismál“. Þær upplýsingar sem iðnaðarráðuneytið hefur synjað kæranda um aðgang að lúta annars vegar að tiltekinni afstöðu Ross Beaty, forstjóra Magma Energy, vegna opinberrar umræðu sem tengist viðskiptum með HS Orku. Þar er ekki um að ræða upplýsingar sem teljast upplýsingar um umhverfismál samkvæmt umræddu ákvæði. Hins vegar lúta þær að lýsingu forstjórans á þeirri stöðu sem er fyrir hendi um orkusölu af hálfu HS Orku. Í þeim upplýsingum sem synjað hefur verið um aðgang að er hins vegar ekki að finna beina lýsingu samninga um orkuöflun eða orkusölu eða framkvæmda sem þeim gætu tengst. Í því ljósi verður ekki talið að hér geti verið um að ræða upplýsingar um umhverfismál, sbr. m.a. 3. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 23/2006. Af framangreindu leiðir að ákvæði laga nr. 23/2006, um upplýsingarétt um umhverfismál, eiga ekki við í máli þessu. Úr kærunni verður því leyst á grundvelli upplýsingalaga nr. 50/1996.

 

Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. upplýsingalaga er stjórnvöldum skylt, sé þess óskað, að veita almenningi aðgang að fyrirliggjandi gögnum sem varða tiltekið mál með þeim takmörkunum sem greinir í 4.-6. gr. laganna. Eins og fram er komið hefur iðnaðarráðuneytið einvörðungu vísað til ákvæðis 5. gr. laganna til rökstuðnings á synjun sinni.

 

Samkvæmt fyrri málslið 5. gr. upplýsingalaga er óheimilt „að veita almenningi aðgang að gögnum um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari nema sá samþykki sem í hlut á“. Iðnaðarráðuneytið byggir synjun á aðgangi að einni setningu í umræddu bréfi á þessari reglu. Í rökstuðningi og skýringum ráðuneytisins er vísað til þess að í greinargerð sem fylgt hafi frumvarpi því sem varð að upplýsingalögum sé tilgreint sem dæmi um persónuupplýsingar sem án efa séu undanþegnar aðgangi almennings skv. 5. gr. séu stjórnmálaskoðanir. Þá segir í skýringum ráðuneytisins að í þeirri setningu sem hér um ræðir lýsi forstjóri Magma Energy á persónulegan hátt persónulegri skoðun sinni á tilgreindum einstaklingi. Um persónulega skoðun sé því að ræða á sambærilegan hátt og t.d. stjórnmálaskoðun. Að mati ráðuneytisins hafi því borið að líta svo á að hér væri um ræða ummæli sem væru, bæði með tilliti til friðhelgi einkalífs forstjóra Magma Energy og friðhelgi einkalífs þess einstaklings sem ummælin lutu að, þess eðlis að þau vörðuðu „einkamálefni einstaklinga sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari, nema sá samþykki sem í hlut á,“ í skilningi 5. gr. upplýsingalaga.

 

Í tilefni af framangreindu bendir úrskurðarnefndin á að í skýringum við fyrri málslið 5. gr. upplýsingalaga í frumvarpi því sem varð að upplýsingalögum kemur fram að það myndi takmarka mjög upplýsingaréttinn ef allar upplýsingar, sem snerta einkahagsmuni einstaklinga væru undanþegnar. Er þeirri stefnu fylgt að láta meginregluna um upplýsingarétt taka til slíkra upplýsinga en með þeim takmörkunum sem gera verður m.a. til að tryggja friðhelgi einkalífs, sbr. 5. gr. Upplýsingarétturinn verður almennt ekki takmarkaður samkvæmt ákvæðinu nema að undangengnu mati stjórnvalds á því hvort hætta sé á að þeir hagsmunir, sem þar eru tilgreindir, skaðist ef upplýsingarnar eru veittar.

 

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur kynnt sér efni þeirrar setningar sem iðnaðarráðuneytið hefur synjað kæranda um aðgang að samkvæmt framangreindu. Í setningu sem fram kemur í bréfinu næst á undan henni segir svo: „I am a dedicated environmentalist and it has been extremely painful to be the focus of so many attacks on my good reputation with such a lot of nonsense and misinformation.“ Í þeirri setningu sem synjað hefur verið um aðgang að kemur síðan fram það mat bréfritara að athafnir tiltekins einstaklings hafi verið „especially defamatory“.

 

Þrátt fyrir að tilvitnuð orð sé eðlilegt að þýða á íslensku sem „sérstaklega ærumeiðandi“ getur úrskurðarnefndin ekki fallist á að umræddar upplýsingar séu þess eðlis að þær séu til þess fallnar að skaða friðhelgi einkalífs, hvort sem er bréfritarans eða þess aðila sem ummælin beinast að, yrðu þær gerðar opinberar. Umrætt bréf er ritað iðnaðarráðherra sem þess stjórnvalds sem fer með málefni er varða „orku, þ. á m. grunnrannsóknir á orkulindum, nýtingu orku og orkufyrirtæki“, sbr. 3. tölul. 7. gr. reglugerðar um Stjórnarráð Íslands nr. 177/2007. Í bréfinu er m.a. lýst almennri afstöðu forstjóra Magma Energy, m.a. til viðbragða hér á landi vegna aðkomu Magma Energy að viðskiptum með HS Orku hf. Tilgangur bréfsins, að þessu leyti, virðist m.a. sá að mótmæla tilteknum neikvæðum sjónarmiðum sem lýst hafi verið í opinberri umræðu og þýðingu geti haft fyrir umrædd viðskipti. Tilgangur bréfsins er þannig ekki persónulegur af hálfu bréfritara heldur lýtur hann að því að lýsa, gagnvart bæru stjórnvaldi, afstöðu til tiltekinna aðstæðna sem fyrir hendi eru og lúta að viðskiptum sem fyrirtæki sem hann er í fyrirsvari fyrir hefur haft aðkomu að hér á landi. Þrátt fyrir að orðalag í umræddri setningu um að athafnir tiltekins einstaklings hafi verið „especially defamatory“ feli í sér gildisdóm bréfritara um þær athafnir verður ekki séð að það sé til þess fallið að raska friðhelgi einkalífs hans þótt setningin verði í heild sinni gerð opinber.

 

Í síðari málslið 5. gr. upplýsingalaga kemur fram að sömu takmarkanir og fram koma í fyrri málslið ákvæðisins gildi „um aðgang að gögnum er varða mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila.“ Iðnaðarráðuneytið hefur byggt synjun á aðgangi að hluta að umræddu bréfi forstjóra Magma Energy á þessari reglu, enda komi þar fram afstaða til mikilvægra fjárhags- og viðskiptahagsmuna HS Orku hf.

 

Upplýsingalög byggjast á því að við beitingu síðari málsliðar 5. gr. upplýsingalaga sé metið í hverju og einu tilviki hvort viðkomandi upplýsingar varði svo mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni viðkomandi fyrirtækja eða annarra lögaðila að ætla megi að þær séu til þess fallnar að valda þeim tjóni verði þær gerðar opinberar. Þá er í athugasemdum sem fylgdu frumvarpi til upplýsingalaga m.a. tekið fram til skýringar á niðurlagsákvæði 5. gr. að óheimilt sé að veita almenningi viðkvæmar upplýsingar um rekstrar- eða samkeppnisstöðu fyrirtækja. Í þeim hluta umrædds bréfs sem iðnaðarráðuneytið hefur synjað kæranda um aðgang að á þeim grundvelli að þar komi fram upplýsingar um viðkvæma fjárhags- og viðskiptahagsmuni koma fram ummæli forstjóra Magma Energy um afstöðu hans til viðskipta og orkusölu af hendi HS Orku. Nefndin fellst á það sjónarmið iðnaðarráðuneytisins að þær séu þess eðlis að sanngjarnt sé og eðlilegt að þær fari leynt, sbr. 5. gr. upplýsingalaga, af tilliti til viðskiptahagsmuna HS Orku.

 

Með vísan til framangreinds verður ekki talið að iðnaðarráðuneytinu hafi verið heimilt að hafna því að veita kæranda aðgang að þeirri setningu í umræddu bréfi Ross Beaty til iðnaðarráðherra, dags. 18. ágúst 2010, sem kemur næst á eftir orðunum „and misinformation.“ Á hinn bóginn er staðfest synjun ráðuneytisins á öðrum hlutum þessa bréfs.

 

Úrskurðarorð

Staðfest er synjun iðnaðarráðuneytisins, dags. 26. ágúst 2010, á beiðni kæranda [...], um afhendingu á afriti af bréfi Ross Beaty til iðnaðarráðherra, dags. 18. sama mánaðar, í heild sinni að því undanskildu að ráðuneytinu ber að veita honum aðgang að setningu í bréfinu sem kemur næst á eftir orðunum „and misinformation“.

 

 

Trausti Fannar Valsson

formaður

 

 

 Sigurveig Jónsdóttir                                                                                        Friðgeir Björnsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum