Hoppa yfir valmynd

Frétt

13. mars 2011 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðuneytið og sendiráð Íslands í Tókíó fylgjast með þróun mála í Japan

Utanríkisráðuneytið og sendiráð Íslands í Tókíó fylgjast náið með þróun mála í Japan og hafa samráð við önnur norræn stjórnvöld vegna ástandsins þar. Ráðuneytið hvetur Íslendinga í Japan til að fylgjast vel með fréttum og fyrirmælum þarlendra stjórnvalda m.a. vegna stöðunnar í kjarnorkuverinu í Fukushima. Í þessu sambandi er jafnframt bent á upplýsingar frá Geislavörnum ríkisins, sem eru í nánu sambandi við Alþjóða kjarnorkumálastofnunina og norrænar stofnanir á þessu sviði.

Hægt er að ná sambandi við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins í síma 545-9900 eða með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected]

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum